Er þetta ekki orðið nóg?

 

Eitthvað virðist jólakveðja Steingríms J Sigfússonar hafa hitt einhverja þá fyrir er meyrir eru og vita upp sig sökina. Samviska sumra þeirra virðist ekki eins hrein og þeir hafa viljað láta. En í stað þess að leggjast í sjálfskoðun, og sjá hvort ekki er einhverju hægt að breyta, ráðast þeir á sendiboðann sem raskað hefur ró þeirra yfir jólin.

Maður veltir því fyrir sér hvað það er í orðum Steingríms sem fer svona illa í þá er vansvefta hafa verið, hvort það séu þau orð hans að svo virðist sem búskussar hafi hér stjórnað ferð, og efnahagur þjóðarinnar hrunið þess vegna. Ekki verður betur séð að sú samlíking Steingríms sé bæði sönn og rétt, þó sár sé fyrir suma.

Það sem þó er verst í þessu og rennur upp fyrir manni þessa dagana, að þeir sem illa fóru með bújörð sína og fénað og reknir voru í endurmenntun þess vegna, flykkjast eru ennþá á jörðunum og þykjast geta leiðbeint þeim sem falið var að reisa búin  við að nýju.  Og það því miður án er virðist að hafa sótt tíma eða lært nokkuð af því sem á undan er gengið, né heldur beðist afsökunar á gjörðum sínum fyrr.

Ég held að enginn hugsi dæmið sem svo, að flokkar þeir sem hruninu ollu sú nú útskúfaðir frá stjórn landsins um aldur og ævi , svo er ekki . En það verður þó að segjast að meðan þeir halda sig við sama heygarðshornið og láta sem svo að sú stefna sem þeir standa fyrir og á stóran hlut í hvernig komið, sé jafnframt sú vænlegasta til að koma okkur út úr vandamálinu, þá geta þeir ekki vænst þess að á þá verði hlustað.  Það getur varla talist skynsamlegt í ljósi stöðunnar.

Það væri  nú óskandi að þeir hefðu séð villu síns vegar, áttað sig á stöðunni og færu brátt að verða tilbúnir til að takast á við vandamálin sem við blasa sökum  stefnu sinnar fyrrum. Að þeir myndu hætta þeim loftkastalabyggingingum og hugarórum sem þeir hafa verið svo uppteknir af undanfarið. Og sameinast með þeim er treyst hefur verið til að endurrreisa búíð í þem lausnum sem virðast blasa við.  

Hanga ekki í ímynduðum og langsóttum lausnum þess er helst ekki vill leysa málið, heldur gerra nákvæmlega það sama og Steingrímur J Sigfússon og raunar stjórnin öll hafa þurft að láta sig hafa. Álit þeirrar lögmannstofu sem  stjórnarandstæðingarnir  hafa talið afsanna allt það sem stjórnin hefur sagt um málið virðiðst því miður staðfesta það sem stjórnin hefur nú í marga mánuði verið að reyna að koma þeim í skilning um.  Málstaðurinn er ekki svo sterkur að hættandi sé á að fár þá þá leið er búskussarnir vilja fara. Er ekki nú komin tími til að viðurkenna sárar staðreyndir, og vinna að lausnum á okkar sameiginlega vanda, þá væri nú kannski margt auðveldara hér, en er nú

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Upphaf þessa bloggs er rétt,það eru margir meyrir og vita upp á sig sökina að hafa treyst og kosið V.G., Samviska þeirra og sjálfskoðun birtir það ranga,sem þeir gerðu.   Að  treysta stjórnmálamanni,sem við hrun æsti til óeirða,snýr upp á sig,(í orðsins fyllstu merkingu),alls óreyndur að stjórna,ætlar sér að "semja" um skuldir óreiðumanna leynilega,svo vel sem það tókst nú!?    Bú-hvað,?, allt hjá honum er út úr kú,gæti þess vegna verið kallaður kúskussi.     Þessi stjórn ræður ekki við neitt,er máttvana og klifar sífellt á því,að fyrri stjórnvöldum sé um að kenna. Veit hún ekki að það varð heimskreppa. Hún bara ræður ekki við þetta. Það veit meirihluti landsmanna.

Helga Kristjánsdóttir, 27.12.2009 kl. 01:05

2 Smámynd: Jóhann Ólafsson

Það kann vel að vera það það sé rétt hjá þér Hannes að margir taki þessa kveðju Steingríms til sín og megi það vel. Það eru hins vegar ansi margir sem skilja ekkert lengur í Steingrími og hans félögum. Hann talar um búskussa og það er alveg rétt að Steingrímur tók við slæmu búi. Steingrímur er hins vegar búinn að sitja á býlinu góða í heilt ár og er ekki að gera nokkurn skapaðan hlut fyrir það, hann mokar ekki flórinn, hann gefur ekki skepnunum (svo við höldum okkur við líkindamálið) og það versta er að hann hefur ekki dug til að fara og ræða við bankastjórann (UK) og semja um þau lán sem hvíla á býlinu. Hann mun því setja býlið í þrot og láta bankann hirða það. Þegar að því kemur þá mun Steingrimur kvarta sáran fyrir þeirri stöðu sem býlið er komið í og kenna fyrrum búskussum um.

Jóhann Ólafsson, 27.12.2009 kl. 11:34

3 Smámynd: Hannes Friðriksson

Blessuð Helga og Jóhann.

Helga. Það held ég að sé nú óskhyggja í anda þess er á eftir kemur hjá þér að kjósendur VG hafi tekið þetta til sín, enda til þeirra beint. Það held ég að sé einhver sögulegur misskilningur og algjört vanmat á stöðunni að Steingrím hafi þurft til að æsa hér til óeirða eftir hrunið. 70% prósent þjóðarinnar hafa nefnilega það sem kallað er réttlætistilfinningu, hugtak sem þeir sem að hruninu stóðu með einkavinavæðingu sinni  þekkja ekki, og virðast ekki vilja kynnast. Nú virðist ljóst að ekki er hægt að kenna þeirri stjórn sem nú situr um hrunið, og því nærtækt að leita aftur fyrir sig þegar leitað er að ástæðum. Og hverjir eru nú það sem þar sátu  í 16ár á undan? það þýðir nú lítið að kenna heimskreppunni um alla þá að því er virðist ólöglegu gjörninga sem viðgengust hjá þeim er fengu bankana, símann og ég veit ekki hvað í gegnum einkavinavæðinguna. Það er heimatilbúið vandamál, em menn vissu um en vildu ekki segja frá.

Jóhann: Nú höfum við eytt einu ári í að fjasa um Icesave, mál sem raunar frá fyrstu dögum hrunsins við vissum að myndi ekki hverfa. Og það er ekki horfið ennþá. Lítið hefur verið hægt að aðhafast á meðan menn hafa stöðugt reynt að finna nýja fleti, sem þó hafa ekki fundist. Það mál hefur staðið okkur fyrir þrifum. Þrátt fyrir það hefur þó teksit að endurfjármagna bankanna, og fundnar leiðir til þess að allt hafi ekki farið á hausinn endanlega á meðan Hrunaflokkarnir hafa gert nánast allt sem mögulegt er til að hindra uppbygginguna, og nú síðast krafist þess að birt yrðu skjöl sem ekki er málstað okkar til framdráttar komi til málaferla. Slík er nú ábyrgð þeirra. Það er nefnilega erfitt jafnvel fyrir menn eins Steingrím að moka flórinn ef skóflan hefur verið gefin einhverjum öðrum. En hann hefu þó reynt með hendurnar einar að vopni. Láti stjórnarandstaðan ekki af þessu viðhorfi sínu að stjórnmál snúist eingöngu um að þeir stjórni mun illa fara. Er ekki komin tími til að þeir axli þó ekki væri nema smá hluta að ðábyrgðinni og hjálpi til í stað þess að standa stöðugt í veginum?

Með bestu kveðju

Hannes Friðriksson , 27.12.2009 kl. 12:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.