Hvar er samkeppnisstofnun?

Hitaveita Suðurnesja-jafnræði og samkeppni. Á undaförnum mánuðum hef ég þreytt lesendur blaðannna með greinarskrifum um það sem ég vil kalla ein stærstu mistök stjórnmálamannana á síðastliðnu ári þ.e sölu 15% hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja. Sala sem fór fram án þess að nokkrar reglur eða lög hefðu verið sett um hvernig þessum málum skyldi varið til framtíðar. Í kjölfar þessarar sölu fór af stað farsakennd atburðarrás þegar flest öll sveitarfélögin ásamt Reykjanesbæ ákváðu að selja sinn hluti ýmist til Orkuveitunnar eða Geysis Green Energy, eftir að ljóst var að ekki næðist samstaða meðal sveitarfélaganna að nýta forkaupsrétt sinn að hlut ríkisins.Reykjanesbær seldi u.þ.b 5% til OR.

 Maður skilur enn ekki þann dag í dag af hverju sveitarfélögin gátu ekki náð samstöðu um að standa saman um þau 85% sem eftir voru. nema ef vera skyldi að einkavæðingardraumar bæjarstjóra Reykjanesbæjar hafi þar ráðið för.þegar hann valdi að taka stöðu við hlið GGE og þar með mynda nýjan meirihlut innan Hitaveitu Suðurnesja.Hefðu menn valið samstöðu sveitarfélaganna og hreinlega hunsað hinn nýja meðeiganda GGE með sín 15%,væru sveitarfélögin sennilega í dag að krefjast örlítið hærri arðgreiðslu sem hefði getað runnið til íbúanna í formi lægra orkuverðs.

Þrátt fyrir að nær öruggt mátti teljast að eftirfarandi gjörningar stæðust ekki samkeppnislög, ákváðu snillingarnir þó að gera með sér samkomulag um eignarhaldið þar sem keppinautarnir Reykjanesbær Orkuveitan og Geysir Green Energi áttu nær jafnan hlut. Ég hef reynt allt það sem ég hef getað og af öllum mætti sem mér er gefin, að benda þeim á er ráða, að ef ekki yrði fyrst reynt að koma eignarhaldinu í Hitaveitu Suðurnesja í það sem ég vil kalla eðlilegt horf, þ.e. að þau stæðust bæði samkeppnislög. og jafnræðislög ættum við eftir að standa frammi fyrir miklu stærra vandamáli seinna meir. Þetta tel ég vera að koma í ljós núna þegar fyrir liggja þær lagabreytingar sem ríkistjórnin hyggst nú leggja fyrir Alþingi.

Nú er orðið ljóst að skipta verður upp Hitaveitu Suðurnesja þannig að einkaleyfistarfsemi og samkeppnisrekstur verða aðskilin og það mun kosta. Og það verða neytendur sem borga. Öllum ætti að vera það ljóst að ekki er hægt að skipta HS. upp skv. þessu módeli út frá samkeppnislögunum, þar sem OR á 32% hlut í samkeppnisaðilanum. Ætla menn að halda áfram þrátt fyrir það og keyra þessi lög í gegnum þingið? Það þýðir ekki lengur hvorki fyrir ríkistjórn né sveitarstjórnarmenn að stinga hausnum í sandinn eins og strútar og halda að þótt þessi lög verði samþykkt að málið sé leyst.

Það er ljóst að verði frumvarpið samþykkt í þinginu þá verður það ríkið sem kemur til með að bera ábyrgð á að 2/3 hluta eignarhalds í HS verði uppfyllt. Eða er það virkilega ætlunin að Reykjanesbær, sveitarfélögin eða OR beri ábyrgðina á hinum opinbera meirhluta sem krafist er samkvæmt frumvarpinu? Og hvað með samkeppnis- og jafnréttislögin? Gilda þau kannski ekki um okkur á Suðurnesjum? Það er ljóst í mínum huga að samkeppnisyfirvöld ættu ekki að geta samþykkt þann samruna sem þegar er orðinn og þaðan af síður allt það flækjustig sem á eftir kemur ef lögin verða samþykkt. Maður spyr sig hinsvegar nú þegar stjórnmálamönnunum er með snilli sinni að takast að eyðileggja stórgott fyrirtæki, hvar er samkeppnisstofnun?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.