Sólin skín á Suðurland

 

Suðurnesjasólin hefur sjaldan skinið skærar, og veitti okkur góðan yl í gegnum stofugluggana  nú um helgina rátt fyrir kulda og trekk úti fyrir. Hún boðar okkur vorið og breytingar framundan. Prófkjör Samfylkingarinnar um síðustu helgi er einmitt dæmi um slíkar breytingar, opið prófkjör þar sem öllum íbúum á Suðurlandi var gert mögulegt að velja sér frambjóðendur á lista. Og þann möguleika nýttu tæplega tvöþúsund og fjögurhundruð  manns sér.

Ljóst er að prófkjör þetta var merkilegt fyrir margra hluta sakir og ánægjulegt að sjá hve vel þessi fyrsta tilraun með netkosningu tókst. Og margt sem af henni verður hægt að læra sé til framtíðar litið. Mikil endurnýjun hefur orðið á lista flokksins og sterkir einstaklingar sem þar bjóða sig fram

Fyrir okkur íbúa á Suðurnesjum var þetta prófkjör sigur samstöðunnar þar sem okkur tókst að tryggja okkar frambjóðanda öruggt sæti á listanum, og ætti það að verða okkur hvatning og áminning um hver styrkur okkar er í kjördæminu þegar við náum að snúa saman bökum sem þarna var. Oddný G Harðardóttir verður verðugur fulltrúi okkar á þingi fari svo fram sem horfir.

Fyrir þann sem öllu þessu olli Björgvin G Sigurðsson voru úrslit þessa prófkjörs persónulegur sigur, og um leið sigur lýðræðisins í landinu. Björgvin sem fyrstur manna í nóvember síðastliðnum orðaði að afsögn þeirrar rikistjórnar sem þá sat og sjálfur sagði svo af sér embætti í janúar og axlaði þar með sína ábyrgð á þeim hluta er að honum snéri fékk hér endurnýjað umboð kjósenda sinna til að leiða lista Samfylkingar í Suðurkjördæmi. Og það umboð hefur honum nú verið veitt, beint og milliliðalaust frá kjósendum og stuðningsmönnum flokksins.

 

Ljóst er að sá listi sem út úr prófkjöri þessu hefur komið endurpegla nokkuð  vel kjördæmið allt og þær áherslur sem hvert byggðarlag stendur fyrir í svo stóru kjördæmi sem sem Suðurland er. Hlutur kvenna er þar stór og sýnir að það fyrirkomulag sem viðhaft var við kjörið hefur skilað því sem að var stefnt.

Framundan er stutt en snörp kosningabarátta þar sem tekist verður á um þau grunngildi sem sem við viljum að hér verði höfð að leiðarljósi við uppbyggingu þess þjóðfélags sem við viljum búa í . Uppgjör við þá frjálshyggju  og eiginhagsmunapot sem leitt hefur til þeirrar stöðu sem nú er uppi og spurningunni um hvort ekki sé nú kominn tími á breytingar hvað það varðar. Að leiða fram fólk og flokka sem hafa stefnu jöfnuðar og félagshyggju að sínu leiðarljósi við úrlausn þeirra vandamála sem við stöndum frammi fyrir.

Þeir frambjóðendur sem stuðningsmenn Samfylkingarinnar völdu um helgina eru öflugir talsmenn þeirra breytinga, sem þjóðin hefur nú þörf fyrir. Veitum þeim brautargengi okkar í vor.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Ég vil nota tækifærið og óska Samfylkingarfólki til hamingju með glæstan árangur Ólínu Þorvarðardóttur. Þar er réttlát kona með uppbyggileg stefnumál á ferð.

Hilmar Gunnlaugsson, 9.3.2009 kl. 21:30

2 identicon

Rétt hjá þér Hannes að þetta prófkjör var til fyrirmyndar og í anda lýðræðis og ánægjulegt að við Suðurnesjamenn höfum þarna verðugan fulltrúa í öðru sæti. Þótt ég sé ekki í flokknum og kjósi hann ekki þá fannst mér gott að geta haft áhrif á uppröðun listans og nýtti mér þann rétt.

 Það er hins vegar frekar sorglegt að heyra hvernig þú ferð orðum um afsögn Björgvins G. Sigurðssonar og að hann hafi þar axlað ábyrgð m. v. allt það sem á undan var gengið. Sérstaklega undarlega var að þeirri uppsögn staðið, hefði nú verið eðlilegra að hann hefði rætt það við sinn formann fyrst og tilkynnt það með honum eða a.m.k. í samráði við hann. Auk þess hafði hann nú ekki staðið sig það vel að hann hefði ekki átt að segja af sér, virtist oft á tíðum vita lítið um hvað var að gerast eða hafði gerst. Þannig ég lít frekar á þetta sem plott enda maðurinn á fullu núna, í fyrsta sæti Samfylkingarinnar í okkar kjördæmi og það kæmi mér ekkert á óvart að hann settist aftur í ráðherrastól á árinu, þ.e.a.s ef Samfylkingin kemst í ríkisstjórn, mikil ábyrgð það.

Vilmundur Fridriksson (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 22:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.