Nýtt ráðhús í Reykjanesbæ?

 

 akademian

 

Nú í kjölfar hruns og breyttra aðstæðna í þjóðmálum er eftir því kallað að menn leiti nú leiða til sparnaðar og annarar hugsunar hvað varðar opinberan rekstur. Og fyrir mann eins og mig, sem virðist leyfa sér að hafa skoðanir á nánast flestu í umhverfi mínu er þetta náttúrulega gósentíð. Hugmyndir koma og fara, sumar kæfi ég sjálfur með nánari umhugsun, en aðrar sjá  vinir og vandamenn um að kæfa,  sem finnst ég fara fullgeyst í hugsunum mínum.

 

En þrátt fyrir mótbárur finnst mér samt eins og ég hafi nú fengið hugmynd sem vert er að reyfa, og setja fram sem valkost nú þegar ljóst er að bærinn okkar á í vandræðum sökum mikillar skuldsetningar. Og mikilvægt er að við nýtum það sem við leigjum á skynsaman hátt. Svo má deila um hvað er skynsamlegt og hvað ekki.

 

Öllum er okkur ljóst sem undanfarin ár höfum lagt leið okkar á bæjarskrifstofurnar hér í Reykjanesbæ, að sú starfsaðstaða sem þar er boðið upp á, er með lakara móti. Eða eins og einn starfsmaðurinn sem þar vinnur sagði " Hér er ekki einu sinni pláss til að skipta um skoðun". Bæjaryfirvöld hafa nú myndað sér skoðun um hvernig hús það sem kennt er við íþóttaakademínua verði nýtt til frambúðar, og  spurning hvort hægt verði að skipta um þá  skoðun.

 

Hús íþróttakademíunnar er stórt og mikið, enda byggt þegar stórbrotnar hugmyndir áttu hér auðvelt með að festa rætur. Sá tími er liðinn, og finna þarf húsinu nýja notkun. Ákveðið hefur verið að leggja það húsnæði undir starfsemi fimleikadeildarinnar, sem allra góðra gjalda verð, en spurning um hvort ekki séu aðrir möguleikar í stöðinni, bæði í ljósi fjarmagnstöðu bæjarins og fjölda þeirra íþóttahúsa sem nú þegar eru í bæjarfélaginu. Það tel ég vert að skoða betur.

 

Hús þetta er staðsett á besta stað í bænum, og sá hluti húsins þar sem íþróttastarfsemin fer fram í gefur góða möguleika á breytingum, sökum þeirrar lofthæðar sem nú er þar fyrir. Svo virðist sem þar mætti setja inn svalir og auka þar með fermetrafjölda þess rýmis umtalsvert  þar sem koma mætti fyrir skrifstofum ýmiskonar. Tillaga mín gengur sem sagt út á að í stað þess húsnæði þessu verði ráðstaðfað til langs tíma undir starf fimleikadeildar, sem nýtti það part úr degi, verði að því hugað hvort ekki sé möguleiki að þess í stað verði hús íþrottaakademíunnar breytt í ráðhús bæjarins. Og húsið fullnýtt allan daginn.

 

Auðvitað þarf einhverju til að kosta, en á móti myndi koma sparnaður í húsaleigu á núverandi skrifstofum bæjarins, sem fyrir löngu er orðin óviðunandi og bænum ekki  sæmandi hvað varðar aðbúnað þess starfsfólks er þar vinnur. Með þessu ynnist það að ráðhús bæjarins yrði meira miðsvæðis í bæjarfélaginu, og tengsl þess við  þann þjónustukjarna sem þarna er að myndast, yrðu meiri og betri, með augljósum  þægindum fyrir íbúanna. Þarna eru næg bílastæði . Ég tel rétt að bæjaryfirvöld kanni hvort slík breyting á húsnæðinu sé möguleg , í ljósi þeirra staðreynda sem ég hef hér að framan rakið. Það getur sparað bæjarfélaginu útgjöld til lengri tíma litið, sé þetta mögulegt.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Snilldarhugmynd að hafa ráðhúsið svona miðsvæðis þ.e. bæði í Njarðvík og Keflavík. Einnig frábært að finna frambúðarlausn á vanda starfsfólksins og þeirra sem þiggja þjónustu frá bænum þegar kemur að þrengslum, sá vandi er vel þjappaður í núverandi rými. Einnig þarf að finna framtíðarlausn á vanda fimleikaiðkenda sem felst í því að byggja viðeigandi rými en ekki troða þeim inn í fjölnotahús eins og hefur verið gert síðastliðin ár. Áfram góðar hugmyndir og bjartsýni. Þannig verður veröldin okkur öllum hliðholl (:

Thelma Björk (IP-tala skráð) 29.10.2009 kl. 14:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband