Miðvikudagur, 15. október 2008
Þarna áttust við maður og dýr.
Nú í nokkur ár hafa vinir og vandamenn gengið mann undir mann fram í því að smita mig af veiðidellunni. Verið dugleg við að bjóða mér að koma með í þeirri veiku von að einhvern tíma kæmi sá dagur að ég veiddi eitthvað. Frúin sem komin er af sjómönnum langt aftur í ættir hafði meira að segja haldið því fram á mannamótum að hún hefði séð fiska synda beina leið til hafs, þegar ég birtist við ár eða vötn . Magnaðar sögur hafa gengið af fiskileysi mínu og útgerðarmaðurinn vinur minn vildi meina að það yrðu endalok sjávarútvegs á Íslandi, ef hann leyfði mér að fara einn túr með honum . En nú er þetta breytt eins og raunar allt íslenskt samfélag. Í gær veiddi ég Maríulaxinn.
Eyjólfur vinur minn sem lengi hafði séð að þetta fiskleysi var tekið að hafa áhrif á sjálfsmynd mína bauð mér með sér til að sýna mér nú eitt skipti fyrir öll hvernig ætti að gera þetta. En hafði nú ekki meiri trú á veiðimennsku minni en svo að þegar þessi langþráði fiskur loksins beit á var hann staddur upp í bíl með þriðja veiðifélaganum í kaffi, og ég staddur út í miðri á með ferlíkið á hinum endanum. Fyrir mig var ekkert annað að gera en að halda af krafti í stöngina og vona að þeir yrðu ekki í kaffi fram yfir hádegismat. Þarna áttust við maður og dýr.
Fljótlega mættu þeir þó á svæðið og leiðbeindu mér um hvernig best væri að svona málum staðið og í land kom fiskurinn, kannski ekki alveg eins stór og mér hafði þótt hann vera þegar ég stóð yfirgefinn í miðri á. Allt fór þetta fram samkvæmt einhverjum hefðum sem þeir sögðu að væru og varð ég að bíta af fiskinum veiðiuggan . Það borgaði sig því næsti fiskur var mun stærri.
Frúin sýndi varla svipbrigði þegar ég kom heim og bað hana hróðugur að rýma til í frystikistunni svo koma mætti afla dagsins fyrir. Hún spurði hvort ekki væri nóg að hreyfa smá til horninu á frystikistunni , en brá við þegar í ljós kom að frystikistan var varla nógu löng, og beygja þurfti fiskinn til að koma honum þar ofaní. Veit þó ekki hvort það segi meir um stærð frystikistunnar eða fisksins.
Athugasemdir
Til hamingju með veiðina. Þetta er vonandi bara byrjunin á veiðferlinum..
Björn Bjarnason, 15.10.2008 kl. 12:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.